Ýsa í karrý kókosraspi

Forsteikt ýsa í karrý kókos raspi
Í áratugi hefur ýsa í raspi verið á matborðum landsmanna, og að sjálfsögðu er Grímur kokkur með sína aðferð við að framreiða þennan vinsæla rétt og þar hefur vel tekist til.
Nú er Grímur kokkur að kynna forsteikta ýsu í karrý kókos 
Grímur kokkur mælir með að setja fiskinn frosin í ofninn í nokkrar mínútur eða að steikja hann upp úr kókos olíu á pönnu.  "Snilldar gott þó ég segi sjálfur frá" sagði Grímur.
 

Ýsa í raspi

Í áratugi hefur ýsa í raspi verið á matborðum landsmanna, og að sjálfsögðu er Grímur kokkur með sína aðferð viða að framreiða þennan vinsæla rétt og þar hefur vel tekist til, prófið þennan góða rétt.
 

Mexíkó ýsa

Gratíneruð ýsa með Mexíkó sósu.
 Mexíkó ýsan er í ætt við plokkfiskinn, nema með mexíkó sósu saman við fiskinn og kartöflurnar. Rétturinn er bragðgóður og góð tilbreyting fyrir þá sem vilja prufa eitthvað nýtt í matargerð. Þetta er einn af þessum nýju fiskréttum Gríms kokk sem er svolítið öðruvísi og vel til fallið að prófa.
 
 

Smábollur með fyllingu

Smáfiskibollur með Sveppa,hvílauks og Chillifyllingu  og svo Smáfiskibollur með Rjómaostafyllingu.
 

Broccoli ýsa

Gratíneruð ýsa með broccoli
 
Girnilegur fiskréttur í ætt við plokkfiskinn, nema með broccoli sósu, og broccoli í bland við fiskinn og kartöflurnar.

Fiskibollur

Gríms Fiskibollur eru ljúffengar og bragðgóðar, margir viðskiptavinir Gríms kokks hafa sagt að þær minni helst á fiskibollurnar hennar mömmu. Þetta er gamall íslenskur réttur sem er þó alltaf jafn vinsæll meðal landsmanna. Prófaðu þessar frábæru fiskibollur og þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Fiskibollurnar eru fulleldaðar, aðeins þarf að hita þær upp í ofni eða á pönnu, þær innihalda aðeins um 1% fitu.
 
Grímur kokkur ehf  |  Eiði 14  |  900 Vestmannaeyjar  |  481 2665  |  grimurkokkur@grimurkokkur.is
Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011