Vörulisti okkar
Humarsúpa
Nú er komin á markað ljúffenga humarsúpan frá okkur í neytendaumbúðum.
Með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar, einstaklega bragðgóð fyrir sælkera. Eins og með aðrar vörur hér er súpan fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp.
Krafturinn soðinn úr humarklóm og úr því gerð kraftmikil humarsúpa sem hvaða veitingarstaður sem er væri stoltur af.
Grímur kokkur mælir með að steiktir séu humarhalar, eða annað sjávarfang og bætt út í súpuna. Gott er að hafa með súpunni hvítlauksbrauð eða volg smábrauð.
Innihaldslýsing fyrir Humarsúpu
Humarsoð 70%, jurtarjómi, tómatpúrre, gulrætur, laukur, smjör, hveiti, sítrónusafi, koníak, kjötkraftur, hvítlaukur, karrý, krydd og mikið af ástríðu við eldun.
Næringargildi í 100 g
Prótein 1,9gr
Fita 4,9 gr
Salt 0,7gr
Kolvetni 0,4 gr
Orkugildi pr. 100gr : 167 kkal, 278kJ
