Um okkur
Það sem við stöndum fyrir er hollur, bragðgóður matur sem er fulleldaður og tilbúinn á innan við fimm mínútum. Markmið okkar eru að vera framsækið fyrirtæki á matvælamarkaði, láta hlutina gerast og ná árangri, til hagsbóta fyrir fyritækið, starfsfólkið og allra helst fyrir viðskiptavini okkar. Grímur kokkur ehf. var stofnað í desember 2005, en í mörg ár hafði Grímur Gíslason framleitt tilbúna fiskrétti fyrir mötuneyti og verslanir. Strax í ársbyrjun 2006 var blásið til sóknar í allri vöruþróun og markaðssetningu og erum við núna inni í öllum matvörukeðjum á Íslandi, auk þess að selja til fjölmargra mötuneyta.
Eigendur Gríms kokks ehf. eru, auk Gríms Gíslasonar, Ásta María Ástvaldsdóttir og bræðurnir Sigmar Gíslason og Gísli Matthías Gíslason. Fyrirtækið er staðsett í Vestmannaeyjum og sendir frá sér ferskar vörur tvisvar á dag til Reykjavíkur. Þar sem við erum í Vestmannaeyjum og höfum aðgang að ferskasta fisk í heimi, höfum við lagt megin áherslu á tilbúna fiskrétti úr úrvals hráefni.
Þegar við starfsfólkið kynnum okkur þá kynnum við okkur sem sérhæfa starfsmenn í framleiðslu sjávarrétta.