17. maí 2010
Grímur kokkur mælir meðGríms Humarsúpa
Með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar, einstaklega bragðgóð fyrir sælkera. Eins og með aðrar vörur frá okkur er súpan fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp.
Best er að setja hana frosna í pott og hita hana við vægan hita.
Hún er gerð þannig að krafturinn er soðinn úr humarklóm og úr því gerð kraftmikil humarsúpa sem hvaða veitingarstaður sem er væri stoltur af.
Grímur kokkur mælir með að steiktir séu humar halar og bætt út í súpuna, eða annað sjávarfang. Gott er að hafa með súpunni hvítlauksbrauð eða volg smábrauð.Þú finnur súpuna í frystinum í næstu verslunn við hliðina á humrinum yfirleitt.
Hér er svo hugmynd af meðlæti með humarsúpunni.
Baguette brauð skorið í þunnar sneiðar
Smurt með rauðu pestói, skelflettur humar skorinn eftir endilöngu og settur ofan á brauðið,
Kryddað með hvítlauk ,salti ,pipar og steinselju .
Þá er rifinn ferskur pharmesan ostur yfir og bakað í ofni við 180 gráður í 4-5 mín .
Þetta er frábært með humarsúpunni.
Bestu kveðjur Grímur kokkur