10. apríl 2010
Grímur kokkur mćlir međGirnilegt humarpasta á mettíma
Hér er uppskrift að mjög einföldu humarapasta sem birtist í Vikunni.
Einstaklega þægilegt og gott.
Girnilegt humarpasta á mettíma.Tagatelli pasta
Humar
Humarsúpa frá Grími kokki, frosinn
Svartur pipar
Hvítlaukur
Rauðlaukur
Paprika
Og það grænmeti sem er til í ísskápnum
Feta ostur
Parmessan ostur
Skelfléttið humarinn og takið svarta þráðinn úr miðju humarhalans.
Létt steikið humarinn upp úr smjöri og kryddið með hvítlauksdufti.
Sjóðið á meðan í potti tagatelli, gott er að setja einn tening af grænmetiskraft út í .
Passið að sjóða pastað ekki lengur en stendur á umbúðunum.
Létt steikið svo það grænmeti sem er til, t.d. rauðlauk, lauk,papriku osfrv.
Hitið humarsúpu frá Grími kokki og notið sem sósu yfir pastað.
Frábær súpa sem hentar ekkert síður sem sósa. Sparar mikinn tíma og er mjög góð á bragðið.

Blandið því næst humrinum grænmetinu og ostinum saman.
Borið fram með einföldu fersku salati, nokkur græn lauf, tómatar, rauðlaukur og nýju baguette.
Bestu kveðjur Grímur kokkur
