19. nóvember 2009
Grímur kokkur mælir meðGeggjað gott salat með reyktri ýsu á brauð
Geggjuð góð uppskrift að salati á brauð.
Salat með reyktri ýsu Frá Grími kokk
600 gr Gríms reykt ýsa létt soðin og roðlaus
5 harðsoðin egg
1 lítill laukur smátt saxaður
2 msk sætt sinnep (bergbys í brúnu brúsunum helst)
2 dl majones
1 dl sýrður rjómi
½-1 tsk aromat
Stappið fiskinn með sinnepinu,setjið saxaða laukinn saman við og skorin egg ,hrært saman með majonnesi og sýrðum rjóma kryddið með aromat.
Hvet ykkur endilega til að prófa.. ég mæli sérstaklega með þessu.
Bestu kveðjur og njótið vel Grímur kokkur.